Leikskólinn Hagaborg

Menu
  • Forsíða
  • Leikskólinn
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Þróunarverkefni og nám
    • Dagatal
    • Starfsfólk
    • Deildir
      • Álfaland
      • Krílaland
      • Putaland
      • Fiskaland
      • Fuglaland
      • Sérkennsludeild
    • Eldhús
    • Leikskólinn Hagaborg
    • Hagaborgarvísur
  • Foreldrar
    • Foreldrafélag
    • Foreldraráð
    • Foreldrasamstarf
  • Myndir

Leikskólinn Hagaborg

Fornhagi 8, 107 Reykjavík
411-3670
  • Forsíða
  • Leikskólinn
    • Fréttasafn
    • Hagnýtar upplýsingar
    • Stefna og starfsáætlun
    • Leikskólastarf
    • Þróunarverkefni og nám
    • Dagatal
    • Starfsfólk
    • Deildir
      • Álfaland
      • Krílaland
      • Putaland
      • Fiskaland
      • Fuglaland
      • Sérkennsludeild
    • Eldhús
    • Leikskólinn Hagaborg
    • Hagaborgarvísur
  • Foreldrar
    • Foreldrafélag
    • Foreldraráð
    • Foreldrasamstarf
  • Myndir
  • Leikskólinn
  • Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Article Index

  • Hagnýtar upplýsingar
  • Húsið, sál þess og saga
  • Umsókn um leikskóladvöl
  • Vistunartími og gjaldskrá
  • Aðlögun
  • Sumarleyfi
  • Allar síður

Leikskólinn Hagaborg, Fornhaga 8, sími 411-3670. Leikskólastjóri er Ólafur Brynjar Bjarkason

Hagaborg er fimm deilda leikskóli á tveimur hæðum þar sem dvelja um 103 börn samtímis á aldrinum 18. mánaða-6 ára. Útisvæðið við leikskólann er rúmgott og gefur ágætt svigrúm til fjölbreyttra leikja. Einnig höfum við góðan íþróttasal á efri hæðinni. Næstu nágrannar eru Melaskóli, Hagaskóli og Neskirkja.

Hagaborg er einn af eldri leikskólum Reykjavíkur, tók til starfa árið 1960, þá sem fjögurra deilda dagheimili. Hjá okkur fer fram alhliða leikskólastarf með áherslu á hreyfingu, málrækt og frjálsan leik. Við viljum að lífið í leikskólanum okkar einkennist af vináttu, trausti og  hlýju.


Húsið, sál þess og saga

Barnavinafélagið Sumargjöf byggði húsið og setti þar á stofn fjögurra deilda dagheimili árið 1960. Sú starfsemi var einungis á neðri hæð hússins, en á efri hæðinni hefur margs konar starfsemi farið fram sem þó tengist flest börnum á einhvern hátt. Sumargjöf var þar með skrifstofu sína og fundarsal og þar var Ljósastofa Hvíta bandsins í nokkur ár og um tíma íbúð fyrir forstöðukonu dagheimilisins. Skrifstofur Dagvistar barna voru þar einnig þar til flutt var í Hafnarhúsið. Starfsfólk skrifstofunnar gat fengið hádegismat í Hagaborg. Eftir að skrifstofa Dagvistar barna flutti í Hafnarhúsið var efri hæðinni breytt töluvert og sett á stofn skóladagheimili sem hét Hagakot, sem síðar hýsti skólasel Melaskóla.

Reykjavíkurborg keypti húsið af Sumargjöf 1997 og um tíma ríkti nokkur óvissa um framtíð þess. Þar kom þó að ákveðið var að Hagaborg fengi allt húsið fyrir sína starfsemi. Árið 1999 var hafist handa við gagngerar endurbætur sem lauk árið 2000 og síðan þá hefur leikskólinn verið 5 deilda á báðum hæðum hússins.

 


 Umsókn um leikskóladvöl

Sótt er um leikskólapláss í gegnum Rafræna Reykjavík. Hægt er að velja um 3 leikskóla í ákveðin sæti.

 


 Vistunartími barna og gjaldskrá

Í upphafi leikskóladvalar barnsins er gerður dvalarsamningum um vistunartíma. Mikilvægt er að virða þann tíma vegna skipulags leikskólans. Ef óskað er eftir breytingum um dvalartíma barnsins er það gert í gegnum Rafræna Reykjavík. Breytingar taka gildi 1. eða 15. hvers mánaðar.

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á dvalarsamningi barns er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar og þarf að vera skriflegur.

Gjaldkrá leikskóla Reykjavíkur má finna á vef Reykjavíkurborgar.

 

 


 

Aðlögun

GuðmundaÞegar barn hefur leikskólagöngu í Hagaborg eru foreldrar þess oftast búnir að skoða leikskólann og fá helstu upplýsingar áður en þeir staðfesta val sitt á leikskóla og er það vel. Við í Hagaborg leggjum mikla áherslu á góð og gefandi samskipti við foreldra og að þeim er grunnurinn lagður í upphafi leikskólagöngunnar. Góð aðlögun barns að leikskóla er mjög mikilvæg og því er mikið lagt upp úr henni og góðu samkomulagi við foreldra þar um. Í Hagaborg er þátttökuaðlögun og foreldrar þurfa að gera ráð fyrir að vera mikið með barninu inni á leikskólanum í þrjá daga. Nánari upplýsingar um má finna í bæklingi um aðlögunina.

Alúð, traust og umhyggja eru lykilorð aðlögunar.


 

Sumarleyfi

SólHagaborg lokar í 20 virka daga yfir sumarið líkt og aðrir leikskólar í Reykjavík. Tilkynnt er á vorönn hvenær leikskólinn lokar yfir viðkomandi sumar.  

 

 

 

 

Leikskólinn Hagaborg

Fornhagi 8, 107 Reykjavík
411-3670
hagaborg@rvkskolar.is
Sendu okkur póst
Innskráning